Karlakórinn Stefnir
Söngur frá 1940

Úr safninu · 26.–27. mars 2011

Æfingabúðir í Reykholti

Stefnir gerði góða ferð í æfingabúðir helgina 26.–27. mars 2011. Þar var æft af kappi allan laugardaginn og frá kl. 10 og fram yfir hádegi á sunnudag.

Kórinn fékk að æfa í Reykholtskirkju. Um tíma voru raddæfingar og æfðu sumar raddirnar í Snorrastofu á neðri hæð hússins. Klukkan 17 var blásið til opinnar æfingar þar sem gestir og gangandi máttu setjast inn og hlýða á prufurennsli nokkurra laga.

Á laugardagskvöldinu var sest að sameiginlegum snæðingi í matsal Fosshótelsins í gamla héraðsskólanum. Aðstaða og þjónusta hótelsins voru vel rómaðar.

Byggt á frétt Finns Ingimarssonar frá 30. mars 2011.