Karlakórinn Stefnir
Söngur frá 1940

Úr safninu · mars 2015

Söngvaseiður

1. tölublað, 19. árgangur. Fréttabréf Karlakórsins Stefnis.

Fréttabréf frá 2015. Dagsetningar, gjöld og netföng í frumtextanum eiga við þann tíma.

Kæru styrktarfélagar

Það hefur all nokkuð drifið á daga Stefnis það sem af er starfsárinu. Í sumar urðu stjórnendaskipti, Julian M Hewlet lét af störfum og Árni Heiðar Karlsson ráðinn í hans stað. Árni Heiðar hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi sem píanóleikari, tónskáld og hljómsveitarstjóri í leikhúsum og kvikmyndum. Árið fór af stað eins og undanfarin ár, á bæjarhátíðinni „Í Túninu Heima“ þar sem Stefni söng bæði í Álafosskvosinni og hjá Bjarka Bjarnasyni að Hvirfli í Mosfellsdal, þar las hann upp úr nýútkominni ljóðabók sinni. Laugardaginn 8. nóvember slógum við upp söngveislu í íþróttahúsinu að Varmá sem við kölluðum Söngurinn í Mosó. Þar komu fram ásamt Stefni, Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði, Karlakór Kópavogs og Kvennakór Akureyrar. Kórarnir gerðu sér glaðan dag með sameiginlegum kvöldverði í Hlégarði. Þetta tókst með slíkum ágætum að endurtekið verður árlega héðan í frá.

Þann 7. desember tók Stefnir þátt í aðventufögnuði hjá Óháða Söfnuðinum. Rétt fyrir jólin komu kórfélagar saman og sungu fyrir íbúa á Hlaðhömrum við góðar undirtektir viðstaddra. Nú í febrúar þáði Stefni heimboð nágrannanna í Karlakór Kjalarness þar sem snætt var með þeim á velheppnuðu kótilettukvöldi.

Næst á dagskrá Stefnis verða afmælistónleikar, en í janúar s.l. varð kórinn 75 ára. Verða þeir haldnir sunnudaginn 8.mars, í íþróttahúsinu að Varmá, þar sem reynt verður að gera sem best úr þeim aðstæðum sem til eru til tónlistarflutnings. Stefnir býður nokkrum kórum úr Mosfellsbæ að taka þátt í afmælis-tónleikunum, en þeir eru, Vorboðarnir, Skólakór Varmárskóla, Kirkjukór Lágafellssóknar og Mosfells-kórinn.

Æfingahelgi verður haldinn 21 – 22. mars n.k. í Vatnaskógi eins og gert hefur verið undanfarin ár.

Vortónleikar ársins verða svo í Guðríðarkirkju í Grafarholti, miðvikudaginn 29. og fimmtudaginn 30. apríl. Hefjast þeir kl 20:00 bæði kvöldin. Að venju verður efnisskráin fjölbreitt, íslensk og erlend lög, meðal annars lög MA kvartettsins. Vonum við að tónleika-gestum líki tök Árna Heiðars á kórnum og flutningi laganna.

Innheimta styrktarfélagsgjalds, kr. 4000 verður eins og á síðasta ári send í heimabanka, en fellur niður ef ekki er greitt fyrir 20. apríl. Einnig verður hægt að greiða gjaldið við innganginn.

Að lokum óskum við styrktarfélögum góðrar skemmtunar og þökkum stuðninginn sem skiptir kórinn miklu máli.

Karlakórinn Stefnir